2. Fuglar Fuglar á Íslandi tilheyra 6 flokkum: Landfuglar Máffuglar Sjófuglar Spörfuglar Vaðfuglar Vatnafuglar
3. Landfuglar Lítið er um landfugla hér á landi. Ástæðurnar fyrir fæð þurrlendisfugla í lífríkinu eru skógleysi og einangrun landsins Þetta er fremur ósamstæður flokkur, þar sem safnað er saman land eða þurrlendisfuglum
4. Landfuglar Fuglar sem tilheyra þessum flokki eru: Bjargdúfa, Brandugla, Fálki Haförn, Rjúpa og Smyrill Kyn þessara fugla eru svipuð útlits, hjá ránfuglum og uglum er þó kvenfuglinn nokkru stærri. Yfirleitt er auðvelt að kyngreina rjúpur Ránfuglar og uglur hafa sterklegan, krókboginn gogg og beittar klær
5. Máffuglar Máfar, kjóar og þernur eru af sama ættbálki og vaðfuglar og svartfuglar og teljast til strandfugla Fuglar sem tilheyra þessum flokki eru Hettumáfur, Hvítmáfur, Kría, Rita, Kjói, Sílamáfur, Silfurmáfur, Skúmur, Stormmáfur og Svartbakur Þetta eru dýraætur sem lifa aðallega á sjávarfangi einnig á skordýrum, úrgangi, fuglsungum, eggjum og fleiru
6. Máffuglar Máfum er oft skipt í tvo hópa til hægðarauka stóra máfa: svartbakur, hvítmáfur, sílamáfur o.fl. og litla máfa: hettumáfur, rita og stormmáfur Flestir máfar og kjóar eru með sterk- legan gogg, sem er krók boginn í endann og sundfit milli tánna Kynin eru eins að útliti en karl- fuglinn er oftast stærri Máfar, kjóar og þernur verpa yfirleitt í byggðum
7. Sjófuglar Þeir afla fæðu sinnar úr sjó, verpa við sjó og ala allan sinn aldur á sjó nema þegar þeir koma á land til að verpa Flestir sjófuglar verpa einu eggi nema skarfar og teista Ungar þeirra allra eru ósjálfbjarga og dvelja oft lengi í hreiðrinu Fuglar í þessum flokki tilheyra þremur ættbálkum
8. Sjófuglar Fuglar sem tilheyra þessum flokki eru Álka, Dílaskarfur, Fýll, Haftyrðill, Langvía, Lundi, Sjósvala, Skrofa, Stormsvala, Súla, Stuttnefja, Teista og Toppskarfur Sköpulag allra fuglanna, nema pípunasa er dæmigerð fyrir fiskiætur sem kafa eftir æti og eru skarfar og svartfuglar svipaðir brúsum og fiskiöndum að lögun Kynjamunur sjófugla er lítill en það er helst einhver stærðarmunur sem greinir kynin að Goggur skarfa, sumra svartfugla, fiskianda og brúsa er og svipaður í útliti
9. Spörfuglar Spörfuglar eru langstærsti ættbálkur fugla Einangrun landsins, skógleysi og vætusöm veðrátta eru taldar helstu ástæður fyrir þessum rýra hlut spörfugla í íslenskri fuglafánu aðeins níu tegundir spörfugla sem verpa hér í einhverjum mæli
10. Spörfuglar Spörfuglar verpa í vönduð hreiður og ungarnir eru ósjálfbjarga, þeir yfirgefa hreiðrið þegar þeir eru orðnir eða að verða fleygir Fuglar sem tilheyra þessum flokki eru: Auðnutittlingur, Gráspör, Gráþröstur, Hrafn, Maríuerla, Músarrindill, Skógar-þröstur, Snjótittlingur, Stari, Steindepill, Svartþröstur og Þúfu-tittlingur Fótur spörfugla kallast setfótur Spörfuglar eru mjög mismunandi að stærð en þó flestir smávaxnir Músarrindill og auðnutittlingur eru minnstir íslenskra fugla, en hrafninn stærstur
11. Vaðfuglar Þeir eru dýraætur og er langur goggurinn hentugur til að grafa eftir æti í leirum, tjarnarbotnum og jarðvegi Sumir fuglarnir eru meiri þurrlendistegundir og hafa fremur stuttan gogg og fætur eins og sandlóa og heiðlóa
12. Vaðfuglar Fuglar sem tilheyra þessum flokki eru Heiðlóa, Sandlóa, Hrossagaukur, Jaðrakan, Lóuþræll, Óðinshami, Rauðbrystingur, Sanderla, Sendlingur, Spói, Stelkur, Tildur, Tjaldur og Þórshani Kynjamunur er lítill hjá vaðfuglum karlfuglinn er þó oft skrautlegri og kven- fuglinn aðeins stærri Einkenni margra vaðfugla eru langur goggur, langir fætur og langur háls
13. Vatnafuglar Andfuglar eru sérhæfðir að lifa á vatni Fuglar sem tilheyra þessum flokki eru: Álft, Blesgæs, Duggönd, Flórgoði, Gargönd, Grafönd, Grágæs, Gulönd, Hávella, Heiðagæs, Helsingi, Himbrimi, Hrafnsönd, Húsönd, Lómur, Margæs, Rauðhöfða-önd, Skeiðönd, Skúfönd, Stokkönd, Straumönd, Toppönd, Urtönd og Æðarfugl Álft, gæsir og sumar buslendur eru grasbítar Hluti af fæðu buslanda, svo og fæða kafanda og fiskianda, er úr dýraríkinu
14. Vatnafuglar Þeir hafa sundfit milli tánna og goggur margra er flatur með hyrnis -tönnum sem auðveldar þeim að sía fæðu úr vatni Auk andfuglanna eru hér tveir vatnafuglar sem hafa lífshætti ekki ósvipaða og hjá öndum Þeir eru lómur og himbrimi Karlfuglinn er ávalt stærri hjá andfuglum hjá öndum er hann yfirleitt mun skrautlegri en kvenfuglinn